Ble.
Bannað að hneykslast! Kallinn kominn í pásu í þjálfun og einhver staðar þarf þetta röfl að komast að. Og ekki allir komnir á þetta blessaða facebook. Reyndar mun þetta væntanlega gera það að verkum að ég skrifa enn minna á hitt bloggið (
sem er samt ekki dautt).
Alla veganna, meistaradeildin komin af stað. Svona var fyrsta kvöldið:
- dags: þrið.15.sept.
- mæting: prýðileg þetta skipti. reyndar var húsráðandi ekki kominn á tilsettum tíma þannig að menn þurftu að redda sér. annars var lineöppið svona: .is - bo - eymi - egill b - dóri - egill t - óskar - kiddi.
- skróp: eysteinn löglega afsakaður en hallur og maggi með skróp.
- leikur: man.utd v Besiktas - ein og hálf stjarna.
- gúff: tvö dómara tvennutilboð með tilheyrandi.
- hverjir fóru: eymi og dóri.
- jakkinn: eymi ansi flottur.
- spil: þrátt fyrir hraun frá bo í byrjun reyndist
apples to apples vera hin besta skemmtun. egill b vann með 5 sigra í lokin.
- næstu leikir: þrið 22. og mið 23.sept.
Annars er ég búinn að setja Eystein í að finna
innanhústíma fyrir Flair Utd í vetur. Væri stemmari að hittast einu sinni í viku í MS í smá bolta. Annars fer dýnuboltaseasonið að hefjast, sumir meðlimir þar líka.
Ok sör. smella þessu bloggi svo á á favourite stikuna á tölvunni (við hliðina á
stress.is).
commentið svo, en engin leiðindi!
heyrumst,
.is
- - - - -