Sunday, October 24, 2010

Two games!

Sælir félagar.

Vá hvað maður er algjörlega hættur að nota blogger. sem er algjör synd, helvítis facebookið gersamlega að skemma etta. En ætla nú samt að halda lífi í þessari síðu aðeins lengur. Hérna kemur snöggt yfirlit yfir síðustu tvo hittinga. Skynja aðeins minni stemmara frá því í fyrra. helstu póstar ekkert komist og svoddann, en tökum bara snúning næst og mætum allir (líka maggi)!

- - - - - -

- dags: Þrið. 19.okt. 18:45 :-)
- mæting: .is, Bo, Kiddi, Dóri og Elli Jack (alveg að fá formlega inngöngu).
- leikur: Real Madrid 2 - AC Milan 0. Mörkin á fimmtándu og sextándu og málið dautt. Milan átti eiginlega ekki breik. Gladdi suma að sjá Ronaldinho með og Gattuso með fyrirliðabandið.
- gúff: Baldur mælti með Hróa Hetti, undirritaður var ekkert heillaður upp úr skónum en slapp alveg.
- hverjir fóru: Undur og stórmerki gerðust - Baldur Ólafsson bauðst til að fara. Kom reyndar hundfúll heim þar sem það varð seinkun. Svo náði hann að rífa allar sneiðarnar sínar á meðan leik stóð, og toppaði svo góða frammistöðu með að klína sósu á buxur og peysu.
- jakkinn: Enn inn í geymslu :-(
- spil: Menn tíndust snemma heim og ekkert spil að þessu sinni (skandall).

- næstu leikir: Leikdagar eru 2. og 3.nóv. Helst ber að nefna Inter v Tottenham á þriðjudeginum og AC Milan v Real Madrid aftur á miðvikudeginum. Tökum við hann ekki aftur!! Aight.

- - - - - -

- dags: Mið. 29.september.
- mæting: Húsráðandi, Eymi, Kiddi, Baldur og Skör.
- leikur: Valencia 0 - Man.Utd 1. Hernandez með mark í lokin. Leikurinn ekkert augnayndi!
- gúff: Skv. venju á fyrsta meistaradeildarkvöldi árins var tvennu tilboð domins tekið - reyndar double þannig, þannig (sjáiði hvernig ég nota þetta orð back to back í þessari setningu) að það var massa mikill afgangur eftir.
- hverjir fóru: Kiddi var sendur einn. málið dautt.
- jakkinn: Haldiði að hann sé ekki lengst ofan í geymslu eftir fluttningana :-(
- spil: Hið glænýja og fáránlega netta Creationary var testað.

- næstu leikir: Við erum að tala um leik ársins; Real Madrid v AC Milan. Koddddu meeððð það.

Wednesday, September 15, 2010

Nýtt season!

Sælir strákar.

Við erum að tala um að ...

... Nýtt meistaradeildar tímabil hófst í gær.
... Two new crips eru klár (reyndar óvíst hvaða stöð baldur splæsir í). Sigló er alla veganna orðið að Skipó.
... Liverpool eru ekki með í aðalkeppninni í ár þannig að fimmtudagar eru komnir heitir inn sem leikdagar!
... Alla veganna 3 ný spil biða eftir að láta spila sig.
... Það séu hugmyndir um að Flair Utd. verði með innanhúsfótboltatíma í vetur.
... högg sé horfið í Flair Utd. Egill T er fluttur út til Boston.
... Spurning hvort að nýir meðlimir verði teknir inn!

Alla veganna, ég er ekki enn kominn með tengingu við sjónvarp (tekur víst 4-5 vinnudaga - hvað er það Dóri)! Engin búinn að heyra í mér með leiki kvöldsins þannig að ég býst við að næstu leikdagar verði teknir.

Endilega ekki vera geldir - látið heyra í ykkur.
kv
ingvi

- - - - - - - -

Tuesday, April 13, 2010

Double report!

Ble.

Soldið að svindla á báðum bloggunum (mönnum til mikillar vanlíðan og svekkelsis).
Ætla að reyna að henda inn síðustu tveimur kvöldum, það fyrra "countar" eiginlega ekki, líkt og þegar ég var sóló :-(

Annars eru undanúrslitin næst. Casa Del B Big verður eiginlega að vera klár. Fer annars yfir íbúðar - og stöðvar 2 sport áskriftarmál í næstu færslu.

Anyway: Gameday 9 og 10:

- - - - -

- dags: Miðvikudagurinn 31.mars (kiddi afmæli).
- mæting: ingvi og hallur (for the first time) mættir eðalferskir beint af æfingu, Óskar (nánast for the first time) kom skömmu síðar.
- leikur: arsenal 2 v barcelona 2 (ætluðum að vera með hann á plúsnum, nema hvað þegar menn voru mættir í sófann föttuðum við að ég er ekki með neinn plús ennþá (skipti yfir í símasystemið fyrir skömmu). eftir miklar skammir frá halli ákváðum við loks að
- gúff: ljóst gos, kaffi og buffbitar!
- hverjir fóru: - - -
- jakkinn: - - -
- spil: - - -

- - - - -

- dags: Mið.7.apríl - svo var tímasetningin ekvað að vefjast fyrir mönnum!
- mæting: algjör b o b a! húsráðendur, kiddi, egill t, egill b, bo, eymi, maggi (for the first time) og Jackerinn (for the first time). spurning um að setja hann á biðlista í klúbbinn!!
- leikur: Man.Utd v Bayern: 3 - 2 (3-0 í hálfleik (er ekki að svekkja menn)).
- gúff: Dominos - já, við erum að tala um 4 kvikindi. Og elli fékk sér plokkfisk!
- hverjir fóru: baldur bauðst til að fara!!! og egill dró svo tvist.
- jakkinn: egill tók hann enn og aftur, held að hann sé farinn að fíla hann!
- spil: ertu að grínast hvað kallinn var með hresst spil (að láni). Við erum að tala um Word on the Street. Reyndar voru flestir farnir, en ingvi og eymi tóku kidda og egil í kennslustund, Langó Style! var þetta of mikið? en þetta var hrikalegt burst. Held reyndar að Bo hefði hent þessu spili í gólfið!

- næstu leikir: við erum að tala um að undanúrslitin byrja í næstu viku. Inter v Barcelona á þriðjudeginum (jev, þvílíkur leikur) og svo Bayern v Lyon á miðvikudaginn. What will it be!

Tuesday, March 30, 2010

Next game!

Kappar.

Hvað er uppi?

Við erum að tala um að átta liða úrslitin byrja í kvöld takk fyrir. Rosalegur leikur í kvöld, man.utd v bayern (og ef einhvern tímann sé til lið sem heggur á hefndir þá er það í kvöld). En það er æfing hjá okkur í egilshöll þannig að ég var að spá hvort menn kíkja ekki í Sigló á morgun miðvikudag og horfa á :

- arsenal v barcelona. ekki slæm viðureign það.

endilega meldið ykkur.

Eins ætlaði ég að nefna við ykkur firmamót Hjörleifs, mínus á Egil að vera ekki búinn að meila á Flair Utd og láta vita hvernig þetta er - en það er sem sé á laugardaginn á gervigrasinu, kick off kl.12 - spurning hvort að Flair Utd eigi að skrá sig? Látið mig vita hverjir eru game.

heyrumst svo,
kv
ingvi

- - - --

Thursday, March 18, 2010

GameDay 8!

veit ekki hvort ég eigi að taka þennan dag með :-(
þrátt fyrir ágætileik og sigur liverpool, þá verður að segjast að ég var frekar lonely sigluvoginum í kvöld :-(

- dags: fim (for the first time).18.mars.
- mæting: ingvi (og guðrún, en hún telst audda ekki með).
- leikur: liverpool 3 v lille 0.
- gúff: 1944 (kjötbollur :-(
- hverjir fóru: - - -
- jakkinn: - - -
- spil: - - -

- næstu leikir: to be anounced later.

.is

Monday, March 1, 2010

GameDay 7!

Sælir meistarar.

Það lifnaði aðeins yfir klúbbnum okkar síðasta miðvikudagskvöld. Nokkrir gullmolar heyrðust og nokkrir sjaldséðir hrafnar sáust (nei ekki maggi).

Sagan segir að Flair Utd gæti verið að fá nýtt útibú seinna í mars mánuði.
sel það ekki dýrara en ég heyrði það. heyrði líka að að það útibú komi jafnvel til
með að einbeita sér að HM í sumar :-)

Alla veganna, hér er skýrslan. og við erum að tala um viku í næstu leiki :-)

- dags: Mið.24.feb.
- mæting: Eigum við að ræða það ekvað: .is, bo, eymi, egillb, kiddi, bjöggi, dóri og eysteinn.
- ath: rætt var um sektir fyrir ákveðna meðlimi Flair Utd! Tveir meðlimir eru með 0 mætingar. þetta var sett í nefnd.
- leikur: Inter Milan v Chelsaea. Ógeðis Maurinho v ógeðis drogba!
- gúff: bara back to basics - almennilegur dómari. reyndar var ansi mikið hraunað á dominos suprise :-(
- hverjir fóru: dóri og egillb áttu ekki gott mót í vafasömu spilunum.
- jakkinn: egill tók hann og var svona temmilega að klára hann, eins og hann kunni ekki alveg á hann!
- spil: jafnvel eitt skemmtilegasta spilið so far! við erum að tala um warewolve - bullandi lygaraspil. Menn sáu svart á hvítu hverjir eru góðir í því og ekki. ætli eymi hafi ekki verið næstur að "vinna".

- næstu leikir: arsenal v porto næsta þriðjudag (9.mars) og man.utd v milan á miðvikudeginum (10.mars). erum við ekki að tala um feitan miðvikudag!!

aight,
.is

Tuesday, January 5, 2010

GameDay 6!

Jev.

Líklegt að ég muni þetta kaffi! alla veganna, þetta var jólameistaradeild, sem sé síðasta gláp fyrir jólin, og hugsanlega síðasta glápið í sigluvoginum. já grátið það þið sem skrópuðu!

Vona að ég sé með etta í grófum dráttum:

- dags: Mið.9.des,
- mæting: Klinsmann, Egillb, Kiddi, Eymi og Dóri.
- leikur: Dynamo Kyiv 1 v Barcelona 2. Mest spennan í þessum riðli, minnir að þetta hafi verið nettur leikur.
- gúff: Eiginlega stolið úr mér - en held að við pottþétt tekið pedsu! þarf að fá comment inn hér!!
- hverjir fóru: Einhvern veginn minnir mig að ég hafi alla veganna fórnað mér, sem er samt soldið skrýtið, kommma soo, hver man?
- jakkinn: Hann er bara tröllum gefinn, skandall :-(
- spil: Við erum að tala um veislu: Party pooper var komið í hús, en auk þess prófuðum við guess what I am (sem eymi by the way drap) og pictureka

- næstu leikir: Riðlakeppnin takk fyrir - 16. og 17.febrúar. Get ready!

aight,
.is