Sunday, October 24, 2010

Two games!

Sælir félagar.

Vá hvað maður er algjörlega hættur að nota blogger. sem er algjör synd, helvítis facebookið gersamlega að skemma etta. En ætla nú samt að halda lífi í þessari síðu aðeins lengur. Hérna kemur snöggt yfirlit yfir síðustu tvo hittinga. Skynja aðeins minni stemmara frá því í fyrra. helstu póstar ekkert komist og svoddann, en tökum bara snúning næst og mætum allir (líka maggi)!

- - - - - -

- dags: Þrið. 19.okt. 18:45 :-)
- mæting: .is, Bo, Kiddi, Dóri og Elli Jack (alveg að fá formlega inngöngu).
- leikur: Real Madrid 2 - AC Milan 0. Mörkin á fimmtándu og sextándu og málið dautt. Milan átti eiginlega ekki breik. Gladdi suma að sjá Ronaldinho með og Gattuso með fyrirliðabandið.
- gúff: Baldur mælti með Hróa Hetti, undirritaður var ekkert heillaður upp úr skónum en slapp alveg.
- hverjir fóru: Undur og stórmerki gerðust - Baldur Ólafsson bauðst til að fara. Kom reyndar hundfúll heim þar sem það varð seinkun. Svo náði hann að rífa allar sneiðarnar sínar á meðan leik stóð, og toppaði svo góða frammistöðu með að klína sósu á buxur og peysu.
- jakkinn: Enn inn í geymslu :-(
- spil: Menn tíndust snemma heim og ekkert spil að þessu sinni (skandall).

- næstu leikir: Leikdagar eru 2. og 3.nóv. Helst ber að nefna Inter v Tottenham á þriðjudeginum og AC Milan v Real Madrid aftur á miðvikudeginum. Tökum við hann ekki aftur!! Aight.

- - - - - -

- dags: Mið. 29.september.
- mæting: Húsráðandi, Eymi, Kiddi, Baldur og Skör.
- leikur: Valencia 0 - Man.Utd 1. Hernandez með mark í lokin. Leikurinn ekkert augnayndi!
- gúff: Skv. venju á fyrsta meistaradeildarkvöldi árins var tvennu tilboð domins tekið - reyndar double þannig, þannig (sjáiði hvernig ég nota þetta orð back to back í þessari setningu) að það var massa mikill afgangur eftir.
- hverjir fóru: Kiddi var sendur einn. málið dautt.
- jakkinn: Haldiði að hann sé ekki lengst ofan í geymslu eftir fluttningana :-(
- spil: Hið glænýja og fáránlega netta Creationary var testað.

- næstu leikir: Við erum að tala um leik ársins; Real Madrid v AC Milan. Koddddu meeððð það.