Monday, March 1, 2010

GameDay 7!

Sælir meistarar.

Það lifnaði aðeins yfir klúbbnum okkar síðasta miðvikudagskvöld. Nokkrir gullmolar heyrðust og nokkrir sjaldséðir hrafnar sáust (nei ekki maggi).

Sagan segir að Flair Utd gæti verið að fá nýtt útibú seinna í mars mánuði.
sel það ekki dýrara en ég heyrði það. heyrði líka að að það útibú komi jafnvel til
með að einbeita sér að HM í sumar :-)

Alla veganna, hér er skýrslan. og við erum að tala um viku í næstu leiki :-)

- dags: Mið.24.feb.
- mæting: Eigum við að ræða það ekvað: .is, bo, eymi, egillb, kiddi, bjöggi, dóri og eysteinn.
- ath: rætt var um sektir fyrir ákveðna meðlimi Flair Utd! Tveir meðlimir eru með 0 mætingar. þetta var sett í nefnd.
- leikur: Inter Milan v Chelsaea. Ógeðis Maurinho v ógeðis drogba!
- gúff: bara back to basics - almennilegur dómari. reyndar var ansi mikið hraunað á dominos suprise :-(
- hverjir fóru: dóri og egillb áttu ekki gott mót í vafasömu spilunum.
- jakkinn: egill tók hann og var svona temmilega að klára hann, eins og hann kunni ekki alveg á hann!
- spil: jafnvel eitt skemmtilegasta spilið so far! við erum að tala um warewolve - bullandi lygaraspil. Menn sáu svart á hvítu hverjir eru góðir í því og ekki. ætli eymi hafi ekki verið næstur að "vinna".

- næstu leikir: arsenal v porto næsta þriðjudag (9.mars) og man.utd v milan á miðvikudeginum (10.mars). erum við ekki að tala um feitan miðvikudag!!

aight,
.is

4 comments:

  1. Fíledda...samt ekki warewolf aftur... og nú er spurning að prufa nýjan vinkil á gúffi...Panini hjá Dómaranum.... hljómar verulega sveitt..

    ég er með pottþétta mætingu nk.

    kv

    Bo

    ReplyDelete
  2. Fíleddalíka. Mæti bókað á mið...er að vinna á þri.

    btw. hef heyrt að panini hjá Domma sé ekkert spes...en sel það ekki mjög dýrt.

    -Eymi

    ReplyDelete
  3. sko, commentakerfið að lifna við.

    held að það sé ekki dómari tvisvar í röð. og veit svei mér ekki með panini þar. hvað þá pastað!

    styttist í að við tökum bara borgara í grillinu sem ég setti sjálfur upp um árið (finnð villu í þessari setningu)!

    það hefur aldrei verið sama spil tvisvar þannig að það er pressa á kallinum.

    en til í aðra eins mætingu. hallur reyndar þrítugur miðvikudaginn 10.mars - en kannski ólíklegt að hann hafi eitthvað þann dag!

    anyways.
    heyrumst,
    ingvi

    p.s. dóri - taskann!

    ReplyDelete
  4. Vill benda á það að ég náði að vinna eitt spil. Eða er það ekki?
    Er annars fáránlega til í Becks á Old Trafford á miðvikud.

    Hvenær ætlar Kiddi annars að kommenta?


    Kv. Egill

    ReplyDelete