Sunday, September 16, 2012

Flair Open 2012

Jæja.

Það hafðist. Fimmta Flair Open mótið staðreynd. Aldrei áður höfum við verið svona seint á ferðinni (sunnudaginn 16.sept). Það kom reyndar ekki að sök, veðrið hefur held ég aldrei verið eins gott.

Menn vildu samt meina að mótið ætti ekki að heita Flair Open. Frekar Flair Invitational, eða í raun "Flair Forced"! - þar sem menn eru nánast "píndir" til þátttöku. nei nei, vona að það sé nú ekki þannig :-)

Alla veganna, fimmti völlurinn, aldrei verið á sjálfum Laugarvatnsvellinum, eða Dalbúanum eins og hann heitir víst. Hann var flottur en ekkert sérlega auðveldur.

Aldrei verið eins fámennt, en góðmennt var það. Vorum sjö í dag, tókum þrjú lið á etta og kviss bamm búmm:

Úrslit:

- 1.sæti: Eymi, Baldur og Kiddi - á 36 sex höggum (rosalegt).
- 2.sæti: Ingvi og Halli - á 50 höggum.
- 3.sæti: Egillb og Egillt - á 56 höggum.

"Þynnstur":
 - Erfitt að dæma, Egillb og Kiddi voru eins og Hallur á Geysi um árið!

"Lengsta brautin í sem fæstum":
- Eymi, Baldur og Kiddi tóku sjöttu brautina á pari (á 5) - og fengu vegleg verðlaun.

"Nándarverðlaun":
- Engin í stuði hér. Áttunda var þónokkuð snúin.

"Búningaverðlaun":
- Eymi fékk tiltal frá vallarverði. Halli var í þröngum gallabuxum. Nýju nike golfbuxurnar fá bara týndu medalíuna!

"Oftast í snappinu":
- Held Egillb, I am right!

"MVP":
- Sveiflan hjá Kidda er orðin ansi góð, það verður að segjast. 

- "Mynd":


Takk fyrir mótið strákar :-)

1 comment:

  1. Ekkert "besta niðursullið" hands down..INGVI SVEINSS....rjómi á peysu buxur stól gólf....

    kv B

    ReplyDelete