Jæja drengir.
Best að lífga aðeins upp á þessa síðu. Veit, blogg kannski soldið 2006!
Alla veganna, fyrsti innanhústími vetrarins í gær. Mjög nett þrátt fyrir 0 sigra hjá mér, og álíka (bévítans) stress fyrir tímann að græja player nr. 9 og 10. Kem betur að því.
Mun reyna að koma með smá skýrslu eftir hvern tíma ásamt tölfræði (kannski bjartsýni). En annars auglýsi ég eftir tölfræðing Flair Utd! Gísli - ertu ekki til að taka þetta að þér?
Voru menn almennt sáttir við reglurnar? Commenta:
1. Það lið sem inniheldur elsta leikmanninn hverju sinni byrjar.
2. Ingva lið er aldrei í vesti.
3. Eymi, Egill B eða Teddi sjá um að koma með bolta.
4. Fyrsti leikur er alltaf "ungir v gamlir".
5. Snapp: 1000kr í sjóð.
6. Ef menn koma of seint (t.d. 20:01): 500kr í sjóð.
En tíminn í gær:
- Eymi og Egill: 200kr sekt fyrir að vera í ermalausum. Egill 100kr auka fyrir að vera í körfuboltabol.
- Gauti: 200kr sekt fyrir syndina rétt fyrir boltann!
- Siggi: Rétt slapp inn á mínútunni.
Boltamál eru víst í fínum málum, Teddi bakkar Egil og Eyma upp hér. Vestin hrein og góð (but I wouldn´t know, sbr. reglurnar hér fyrir ofan).
Úrslit gærdagsins:
- Ungir (arnór-siggi-egill-hjalli-eymi) v Gamlir (teddi-ingvi-óskar-jón pétur-gauti): 10 - 9 (þrátt fyrir rosalegan sprett hjá gömlum í lokin náðu ungir að klára dæmið. Egill var samt tæpur að fá á sig víti á síðustu mínútunni).
- Leikur 2: Óskar - Eymi - Gauti - Jón Pétur og Arnór með stig. Teddi - Ingvi - Egill - Siggi og Hjalli með tap.
- Leikur 3: Þurfum aðeins að ræða leik þrjú almennt, hann var ekki upp á marga fiska í gær!
Staðan:
2 sigrar: Arnór -Eymi.
1 sigur: Óskar - Siggi - Gauti - Hjalli - Jón Pétur - Egill.
0 sigrar: Teddi og Ingvi.
Ungir v Gamlir:
Gamlir:0
Ungir:1
Passar etta ekki hjá mér?
Annars hefst meistaradeildin í næstu viku - HD grandi að lifna við eftir sumarfrí. Meira um það.
.is
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

Heyrðu væni. Farðu aftur yfir liðin. Ég var í ungum karlinn minn. Ekki Gauti. Svo geri ég ráð fyrir að þetta hafi verið grín hjá þér með Ungir-Gamlir stöðuna...
ReplyDeleteEinnig. 300kr. sekt á alla þá sem mættu ekki í hlýrabol.